2000: 14 ára gömul kemst Vanessa Wye inn í metnaðarfullan heimavistarskóla. Þar hefjast örlagarík kynni hennar af kennaranum Jacob Strane, sem hefur lifað helmingi lengur en hún sjálf. Þau hefja samband sem á eftir að móta líf hennar það sem eftir er.
2017: #metoo byltingin skekur heiminn, þegar fjöldi kvenna stígur fram og segir sína sögu. Í kjölfar fjölda ásakana á hendur Strane fylgist Vanessa með heimsmynd hans hrynja og neyðist í kjölfarið til þess að horfast í augu við sjálfa sig og sjá fortíðina í nýju ljósi. Á hún að segja sína sögu, eða halda áfram að þegja?
Bókin vakti strax sterk viðbrögð og var kölluð umdeildasta skáldsaga ársins 2020 í Bandaríkjunum. Mikill ágreiningur vegna efnis bókarinnar varð meðal annars til þess að Oprah Winfrey bókaklúbburinn hætti við að taka hana til umræðu.
Harpa Rún Kristjánsdóttir þýddi.
Sendingargjald er innifalið í verði vörunnar.