Haugalygi

Haugalygi

Verð
5.490 kr
Sale price
5.490 kr
Verð
Uppselt
Unit price
per 

Minnið er svo dyntótt og lævíst.

 Þannig hefst fyrsta sagan í Haugalygi sem jafnframt er fyrsta bók Sigtryggs Baldurssonar.
Þar rifjar hann upp sögur sem hvorki eru alsannar né upplognar. Brot úr eigin ævi og annarra en líka sögur af alókunnugu fólki.

Þannig fylgjum við Sykurmolunum í ævintýraleg tónleikaferðalög, kynnumst því að búa í Bandaríkjunum sem barn og ungt foreldri, sjáum svo börnin verða foreldra og svo framvegis. Misheppnaðir KGB njósnarar skipuleggja bjarndýraveiðar meðan byssuglaðir Bandaríkjamenn komast í hann krappann í tryggingamálum. Karlaveislur í Vestmannaeyjum fara úr böndunum og við komumst að því að útflutningur íslenskrar tónlistar er í raun byggður á tungumálaörðugleikum.

Ævintýraleg frásagnargleði og hæglátur húmor höfundar skína í gegn í þessum sögum sem eru bæði úr lausu lofti gripnar og standa föstum fótum í raunveruleikanum.