Gestabók

Gestabók

Verð
4.299 kr
Sale price
4.299 kr
Verð
Uppselt
Unit price
per 

Hvað eiga ungur rannsóknarblaðamaður, þeyttur fetaostur og kjölturakkinn Járnfrúin sameiginlegt – annað en að vera hugarfóstur meistaranema í ritlist?

Smásagnasveigurinn Gestabók hverfist um veislu og gestina sem þangað koma, flestir að því er virðist fremur af skyldurækni en löngun. Þar er sagt frá kvöðinni sem boð í veislu getur verið, en líka þessu undarlega samsafni fólks sem þar mætist. Fjölskyldubönd teygjast og trosna og sambönd flækjast og leysast upp. Í stutta stund er þetta fólk statt á sama stað og sama tíma, en fyrir utan veisluhöldin heldur lífið áfram. Hlaðborðið er óþrjótandi og gestabókin fyllist smátt og smátt.

„Þessi bók gleypti mig með húð og hári – dúndurverk!“
-María Elísabet Bragadóttir

Höfundar: Anton Sturla Antonsson, Birgitta Björg Guðmarsdóttir, Elísabet Dröfn Kristjánsdóttir, Fanney Björk Ingólfsdóttir, Guðrún Friðriks, Hera Fjord, Hrönn Blöndal Birgisdóttir, Karólína Rós Ólafsdóttir, Orri Matthías Haraldsson og Vignir Rafn Valþórsson.

Ritstjórar: Birgitta Björg Guðmarsdóttir, Orri Matthías Haraldsson og Ægir Þór Jähnke.

Hægt er að velja á milli þess að fá fría heimsendingu á bókinni eða sækja hana í útgáfuhóf ritlistanema sem auglýst verður á allra næstu dögum.

(væntanleg 16. maí)