Hinstu blíðuhót - Augnablik í eilífðinni
Hinstu blíðuhót - Augnablik í eilífðinni
  • Load image into Gallery viewer, Hinstu blíðuhót - Augnablik í eilífðinni
  • Load image into Gallery viewer, Hinstu blíðuhót - Augnablik í eilífðinni

Hinstu blíðuhót - Augnablik í eilífðinni

Verð
4.000 kr
Sale price
4.000 kr
Verð
Uppselt
Unit price
per 

Hjartaskurðlæknirinn Birgitte Solheim er komin á eftirlaun. Þegar endalokin færast nær virðist henni sem allt rakni upp og losni. Hún er orðin öldruð og flestir í vinahópnum hafa safnast til feðra sinna. Líkaminn hrörnar og hneppir hana í bönd svo hún einangrast. Einmana dvelur hún löngum stundum í íbúð sinni í París.

Nú reynir Birgitte að sættast við líf sitt en hefur ekki gefið drauminn um ástina upp á bátinn.
Að rifja upp bestu og verstu augnablik lífsins getur verið skondið, en líka sárt. Það sama á við um minningar af tapi, sorg og söknuði í heimi sem hún skilur sífellt minna í.

Hér birtast saman í einni bók tvær skáldsögur norska rithöfundarins Kjersti Annfinnsen, sem báðar fjalla um hjartaskurðlækninn Birgitte og viðureign hennar við tímann og aldurinn. Sagan er ljúfsár, viðkvæm, kómísk og dálítið bitur frásögn af einsemd, ást og dauða.

Höfundu bókarinnar er Kjersti Anfinnsen.
Anna Kristín Hannesdóttir þýddi úr norsku.

Sendingargjald er innifalið í verði vöru.